{"product_id":"thorsararnir","title":"Thorsararnir","description":"\u003cp\u003eÍ augum danska búðarsveinsins Thors Jensen var Ísland land tækifæranna. Eftir að hafa þreifað fyrir sér í verslun sannfærðist hann um að framtíðin lægi í íslenskri stórútgerð. Í félagi við syni sína stofnaði hann togarafélagið Kveldúlf og lagði þar með hornstein að einu mesta ættarveldi landsins  veldi Thorsaranna.\u003cbr\u003eÁ blómatíma ættarinnar voru umsvif Thorsaranna mikil og þræðirnir lágu víða  í sjávarútvegi, landbúnaði, utanríkisviðskiptum og æðstu stjórn landsins.\u003cbr\u003eThorsararnir bárust á í einkalífinu og þeir eignuðust óvildarmenn sem áttu þann draum æðstan að ganga á milli bols og höfuðs á þeim. Undir niðri kraumuðu ýmis fjölskylduleyndarmál.\u003cbr\u003eSaga Thorsaranna er saga mikils auðs og mikilla áhrifa en ekki síst mikilla örlaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðmundur Magnússon (f. 1956) er menntaður í sagnfræði og heimspeki við Háskóla Íslands og London School of Economics. Hann á að baki langan og fjölbreyttan feril við blaðamennsku og opinber störf. Meðal rita sem hann hefur sent frá sér eru Nýja Ísland. Listin að týna sjálfum sér (2008), Íslensku ættarveldin. Frá Oddaverjum til Engeyinga (2012), Claessen. Saga fjármálamanns (2017) og Séra Friðrik og drengirnar hans (2023) sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Eftir hann liggur að auki fjöldi greina og ritgerða um söguleg efni í blöðum og tímaritum.\u003c\/p\u003e","brand":"Guðmundur Magnússon","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67984086827312,"sku":"9789935332912","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Thorsararnir.jpg?v=1791565334","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/thorsararnir","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}