{"product_id":"traustabrestir","title":"Traustabrestir","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÁrið 1961 leyfir hin sextán ára hlédræga Ragna ungum og myndarlegum pilti, Oddi, að leiða sig út á dansgólfið. Ástin blómstrar og unga parið leggur hamingjusamt af stað út í tilveruna, fer að búa og byggja upp fjölskyldu. En lífið fylgir ekki alltaf fyrirframgefnum uppskriftum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í jarðarför. Ég er ekki nema fimmtán ára gömul svo það er svo sem ekkert skrýtið að ég hafi aldrei þurft að ganga í gegnum þetta áður. Við nemum staðar við tröppurnar innst í kirkjunni og virðum kistuna fyrir okkur. Kistuna hans pabba.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAlvarleg veikindi setja strik í reikninginn og Ragna þarf að takast á við mun flóknari og stærri áskoranir en hún hafði nokkurn tímann gert ráð fyrir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTraustabrestir er sannsöguleg skáldævisaga þar sem Sigurrós Jóna, dóttir Rögnu og Odds, segir frá lífi foreldra sinna auk þess að gefa innlit í eigin minningar frá unglingsárunum og sín fyrstu kynni af sorg og missi.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Sigurrós Jóna Oddsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67759181955376,"sku":"9789935579812","price":8190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/traustabrestir-scaled.webp?v=1790344149","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/traustabrestir","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}