{"product_id":"trunadartraust","title":"Trúnaðartraust","description":"\u003cp\u003eBresk kona drukknar í sundlaug við sumarbústað á vesturströnd Danmerkur. Var þetta slys – eða morð? Ef hún var myrt hver gat gerandinn verið? Afbrýðisöm systir hennar? Ósáttar vinkonur? Ástkær eiginmaður? Eða pabbi hennar sem átti í miklum fjárhagskröggum og þurfti á þeim fjármunum að halda sem líftrygging dóttur hans myndi færa honum? Eða einhver allt annar?\u003cbr\u003eDanski blaðamaðurinn Nora Sand flækist inn í málið þegar það kemur til kasta dómstóla á Englandi. Þegar fleiri láta lífið verður hún sjálf skyndilega skotmark samviskulauss morðingja sem gerir allt til að bjarga eigin skinni.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn og hafa verið gefnar út í 16 löndum. Trúnaðarstraust er sjötta bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar fimm eru \u003cem\u003eStúlkurnar á Englandsferjunni\u003c\/em\u003e, \u003cem\u003eKona bláa skáldsins\u003c\/em\u003e, \u003cem\u003eNornadrengurinn\u003c\/em\u003e, \u003cem\u003eÞagnarbindindi\u003c\/em\u003e og \u003cem\u003eHinir ósýnilegu\u003c\/em\u003e.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLone Theils (f. 1971) var lengi fréttaritari danskra blaða í London en býr nú í Danmörku og sinnir ritstörfum.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSnjólaug Bragadóttir íslenskaði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003cem\u003e„Það er hrein unun að lesa Lone Theils ... Maður vill í alvöru verja tíma með Noru Sand, því hún er svo svo frábær söguhetja.“\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003e     \u003c\/em\u003e– Krummeskrummelurer\u003cbr\u003e\u003cem\u003e\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003e„Það er einstök skemmtun að vera í félagsskap Nöru Sand og Lone Theils.“\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e     – Bokfidusen\u003c\/p\u003e","brand":"Lone Theils","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66516654784816,"sku":"9789935331250","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/TrunadartraustFRAMAN.jpg?v=1776184132","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/trunadartraust","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}