{"product_id":"vakir-thu","title":"Vakir þú?","description":"\u003cp\u003eNú breytist allt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBarið er að dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauða, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMörgum öldum síðar bíður maður í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur eftir pípulagningamanni til að skipta um klósett. Hann er ásóttur af minningum og hugsunum um kærleikann og syndina; nágrannar hans eiga erindi við hann, kirkjufeðurnir sækja að honum og í Airbnb-íbúðinni handan götunnar bíða Adam og Eva eftir svari Útlendingastofnunar við hælisumsókn þeirra. En margt getur gerst, dánir menn lifnað við, heitavatnsrör sprungið og eitthvað hræðilegt er í vændum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er skáldsaga úr samtímanum en þó byggð á ævi frægustu persónu mannkynssögunnar, uppgjör við guð og menn, en líka það fegursta og versta í okkur sjálfum.\u003c\/p\u003e","brand":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68201079537968,"sku":"9789935323729","price":8690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/vakir.webp?v=1794414700","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/vakir-thu","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}