{"product_id":"varkar","title":"Varkár","description":"\u003cp\u003eTilhugsunin um að það verði ekkert bergmál. Að líf mitt verði eins og að klappa einu sinni saman lófum í hljóðeinangruðu herbergi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVarkár er persónulegt verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMargrét Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún vinnur innan ólíkra forma og miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Hún er menntuð sem danshöfundur frá ArtEZ listaháskólanum í Hollandi og hefur lokið meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Verk hennar hafa verið sýnd á hátíðum, söfnum og í leikhúsum víða um heim. Margrét hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998 2002). Varkár er hennar fyrsta skáldverk.\u003c\/p\u003e","brand":"Margrét Bjarnadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67767021044016,"sku":"9789935323521","price":6990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/varkar.jpg?v=1789123051","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/varkar","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}