{"product_id":"vegur-allrar-veraldar-kilja","title":"Vegur allrar veraldar - Kilja","description":"\u003cdiv\u003e\n\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eHaustið 1479 kemur kona norður yfir Kjöl og teymir hest undir gömlum manni. Skáldið Sveinn döggskór Þórðarson er kominn í Reynistaðarklaustur til að deyja. Þó ekki fyrr en hann hefur skrásett sannleikann um atburðina í Rifi, þegar Englendingar drápu Björn Þorleifsson, hirðstjóra konungs á Íslandi. Vígið kveikti ófriðarbál innanlands og utan, og kona Björns, Ólöf ríka Loftsdóttir, hefndi bónda síns svo grimmilega að sögur hafa gengið um það allar götur síðan.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003e\u003c\/span\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eEn hvað af því er satt og hvað er logið, og hverjum leyfist að segja söguna?\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eLöngu síðar, á tímum samfélagsmiðla og örbylgjupizza, reynir sagnfræðingurinn Eyjólfur Úlfsson að endurheimta akademískan orðstír sinn eftir að hafa óvart eyðilagt ómetanlegt fornrit. Þær hrakfarir leiða hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann rekur sig eftir ólíkindalegri slóð handrita og miðaldaklæða í átt að sannleikanum um atburðina í Rifi.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eFimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram: riddarar og sjóræningjar, konungar, hirðstjórar og höfðingjar, en líka fólkið sem þjónaði þeim og reyndi að ávinna sér frelsi og frið á vægðarlausum upplausnartímum.\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv\u003e\u003cspan lang=\"EN-GB\"\u003eVegur allrar veraldar – skálkasaga – er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims – riddarasögu, sem kom út 2022 og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e","brand":"Sigríður Hagalín Björnsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":66713879413040,"sku":"9789935323293","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/vegurallrarveraldar.png?v=1777738530","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/vegur-allrar-veraldar-kilja","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}