{"product_id":"veidistong-handa-afa-minum","title":"Veiðistöng handa afa mínum","description":"\u003cp\u003eVeiðistöng handa afa mínum geymir sex meistaralega samdar sögur eftir kínverska Nóbelsskáldið Gao Xingjian.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSögurnar fjalla um hverfulleika ástar og lífs, vonir og ótta en ekki síst ásækni minninga, þar sem fortíðin verður ekki umflúin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUpplifunum og augnablikum í lífi einstaklinga er stillt upp andspænis stærri veruleika. Sögurnar eru hlaðnar nákvæmum smáatriðum og fíngerðum vísunum svo að unun er að lesa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum sex sögum er brugðið upp ljóðrænum myndum af mótum minninga og veruleika þar sem hið ósagða er fangað af listfengi skáldsins og innsæi listmálarans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGyrðir Elíasson\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eíslenskaði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGao Xingjian\u003c\/strong\u003e, rithöfundur, leikskáld, gagnrýnandi og listmálari, hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2000. Hann fæddist í Kína árið 1940. Í menningarbyltingu Maós á sínum tíma neyddist hann til að brenna verk sín til að forðast ofsóknir yfirvalda. Síðar voru verk hans bönnuð í Kína. Árið 1987 yfirgaf hann heimaland sitt og settist að í Frakklandi. Hann er nú franskur ríkisborgari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGao lítur ekki á sig sem pólitískan flóttamann eða rödd frelsileitandi Kínverja. Hann sé einfaldlega listamaður, einstaklingur sem skrifar bókmenntir fyrir aðra einstaklinga án þess að þjóna nokkrum öðrum tilgangi en að leita sannleika í heimi mannsandans.\u003c\/p\u003e","brand":"Gao Xingjian","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50960902422832,"sku":"9789935331106","price":4790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Veidistong-handa-afa-minum.jpg?v=1773072570","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/veidistong-handa-afa-minum","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}