{"product_id":"velgjan","title":"Velgjan","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eÍ þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilfinningar sínar og skynjanir. Upphaflega átti verkið að heita La Melancholie eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á Velgjunni í staðinn. Eftir sem áður er nóg af þunglyndi í verkinu og þá helst af ætt heimshryggðar (Weltschmerz) sem á til að sækja á unga menn sem ekkert amar að, einskonar lúxusdepurð. Fyrir vikið er í Velgjunni að finna margar athuganir sem eiga erindi við æskufólk sem tíminn vill ei tengja sig við, þar á meðal er upplifunin fræga sem tengist rótum kastaníutrésins í skemmtigarðinum og hefur fengið áþekkan sess í bókmenntavitund Frakka og magðalenukakan hjá Marcel Proust.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003ePétur Gunnarsson íslenskaði og ritaði inngang.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Jean-Paul Sartre","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67984031908144,"sku":"9789935332707","price":5290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Velgjan.jpg?v=1791565066","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/velgjan","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}