{"product_id":"vigdis-kona-verdur-forseti-1","title":"Vigdís - Kona verður forseti","description":"\u003cp class=\"x_elementToProof\" data-ogsb=\"rgb(255, 255, 255)\"\u003e\u003cspan data-ogsc=\"rgb(36, 36, 36)\" data-olk-copy-source=\"MessageBody\"\u003eÍ október 1950 skrifar tvítug kona, í öngum sínum erlendis, foreldrunum bréf sem hún lýkur með orðunum:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci data-ogsc=\"\"\u003e„Hvað skyldi sá dagur heita sem ég get orðið ykkur til ofurlítils sóma?“\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eÞrjátíu árum síðar sver Vigdís Finnbogadóttir embættiseið sem fjórði forseti Íslands og fyrsta konan í veröldinni sem kjörin er þjóðhöfðingi í frjálsum lýðræðislegum kosningum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\" data-ogsc=\"rgb(36, 36, 36)\"\u003eHver er saga þeirrar konu sem heillaði ekki bara landa sína í hlutverki forseta, heldur hálfa heimsbyggðina um leið, með framkomu sinni, hlýju viðmóti og snjöllum orðum? Hér er ítarlega fjallað um uppvöxt hennar og fjölskyldu, áhrifavalda, mótunaröfl og þau áföll sem dundu á Vigdísi áður en hún, einstæð móðir og fráskilin, axlaði það hlutskipti sem þjóðin\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\" data-ogsc=\"rgb(36, 36, 36)\"\u003ekaus hana til. Hvað fól það í sér og hvaða fórnir þurfti að færa? Bókin bregður upp einstæðri og margslunginni mynd af manneskjunni Vigdísi Finnbogadóttur, sorgum hennar og sigrum, þannig að saga hennar verður lesanda bæði nákomin og hugstæð.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\" data-ogsc=\"rgb(36, 36, 36)\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x_elementToProof\" data-ogsc=\"rgb(36, 36, 36)\"\u003ePáll Valsson íslenskufræðingur og rithöfundur er þekktur fyrir bók sína,\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci data-ogsc=\"\"\u003eJónas Hallgrímsson – ævisaga\u003c\/i\u003e, sem færði honum Íslensku bókmenntaverðlaunin.\u003c\/div\u003e","brand":"Páll Valsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67882023420208,"sku":"9789979355427","price":8990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Vigdis_KAPA_72pt.jpg?v=1790945139","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/vigdis-kona-verdur-forseti-1","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}