{"product_id":"vorfljodid-i-fjollunum","title":"Vorflóðið í fjöllunum","description":"\u003cp\u003eÞegar lífið finnur nýjan farveg\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnna-Britta lifir rólegu og þægilegu lífi á eyjunni sinni eftir stormasama ævi. Hnútur í brjóstinu minnir hana á að tími hennar er takmarkaður og áður en hún kveður þennan heim verður hún að gera eitt: skrifa dótturinni sem hún neyddist til að gefa frá sér rúmlega þriggja ára gamla. Sorgin vegna þessa hefur fylgt henni allar götur síðan – og nú er kominn tími til að segja sannleikann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFredrika er vinsæll og eftirsóttur talmeinafræðingur og fyrirlesari, sátt við líf sitt sem fráskilin kona. Bréf frá ókunnugri konu sem segist vera blóðmóðir hennar setur allt úr skorðum. Hún flýr upp í fjöllin þar sem hún leigir bústað hjá Helenu og þar neyðist hún til að horfast í augu við að fortíðin sem hún taldi sig þekkja er byggð á þöggun og hálfsannleik.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHelena rekur veitingahúsið sitt á býlinu í Fjällnäs og lífið gengur sinn vanagang, þótt einmanaleikinn láti stundum á sér kræla. Emily er um það bil að fara að búa með Samuel, Louise hefur fundið ástina og er á leið í hjónaband og Sonja sýnir sífellt sterkari einkenni heilabilunar. Spurningin um Rikard læðist óneitanlega að Helenu: voru það kannski mistök að slíta sambandinu við hann?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVorflóðið í fjöllunum\u003c\/em\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer fjórða bókin í bókaflokknum um Helenu og líf hennar í fjöllunum í Härjedalen – saga um leyndarmál, móðurást, fyrirgefningu og hugrekki til að finna nýjan farveg þegar lífið breytir um stefnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cem\u003eFriðrika Benónýsdóttir\u003c\/em\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eíslenskaði\u003c\/p\u003e","brand":"Karin Härjegård","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51288704614704,"sku":"9789935313478","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/Vorflodid-i-fjollunum.jpg?v=1775317239","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/vorfljodid-i-fjollunum","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}