{"product_id":"yesteryear-islensk","title":"Yesteryear - íslensk","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEn einn daginn vaknar Natalie í undarlegri og skelfilegri útgáfu af veruleikanum. Heimilið, eiginmaðurinn, börnin – allt er kunnuglegt en samt ekki eins og það á að vera. Er þetta hrekkur? Raunveruleikaþáttur? Prófraun frá Guði?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003e„Ég heiti Natalie Heller Mills og ég hef skapað mér hið fullkomna líf.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNatalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi – og fylgjendur hennar eru grænir af öfund. Heillandi sveitabærinn á búgarðinum hennar er í vel skipulagðri óreiðu, eiginmaðurinn myndarlegur kúreki og hvert heimabakaða súrdeigsbrauðið öðru girnilegra. Hvað með það þótt barnfóstrur, framleiðendur og nýtísku heimilistæki leynist á bak við tjöldin? Milljónir fylgjenda trúa á hið fullkomna líf hennar. Það sem þeir vita ekki getur ekki skaðað þá.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNatalie veit aðeins tvennt með vissu: Þetta er ekki fullkomna lífið hennar og hún verður að komast undan – sama hvað það kostar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eYESTERYEAR er kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCARO CLAIRE BURKE sló samstundis í gegn þegar Yesteryear kom út vorið 2026. Þessi fyrsta skáldsaga hennar varð metsölubók á svipstundu og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Caro Claire Burke","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67830342484272,"sku":"9789935313928","price":5290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1090\/3582\/files\/yester.webp?v=1790177669","url":"https:\/\/www.salka.is\/products\/yesteryear-islensk","provider":"Salka - bókaútgáfa og bókabúð","version":"1.0","type":"link"}