Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Óhugnanlegustu verur veraldar

Skrímsla- og draugaatlas heimsins er komin út hjá Sölku. Hefur þig einhvern tímann dreymt um að verða skrímsla- og draugabani? Í þessari bók er lagt af stað í ferðalag þar sem þú hittir fyrir ófrýnilegustu skepnur, forynjur og vofur veraldar. En hafðu ekki áhyggjur! Leiðsögumaður þinn á þessari vegferð er enginn annar en Van Helsing, frægasti skrímslaveiðimaður allra tíma og í bókinni finnur þú svör við hvernig á að sigra hverja ófreskjuna á fætur annarri. Þú mátt engan tíma missa! Pakkaðu niður hugrekkinu, fremdu hetjudáð og bjargaðu heiminum. 

Frábær bók fyrir alla hugaða krakka frá 5 til 12 ára.      

 

19. október 2018 eftir Dögg Hjaltalín