Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Tarot-námskeiðin vinsælu komin í sölu

TAROT-KVÖLD SÖLKU HEFJA AFTUR GÖNGU SÍNA! 

*vorum að bæta við tveimur námskeiðum í mars! Þökkum frábærar móttökur*

Verið velkomin á tarot-kvöld Sölku þar sem nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim. 

Innifalið í verðinu er handbók um tarot, falleg tarot-spil, léttvínsglas (eða óáfengur drykkur) og að sjálfsögðu kennslan. Pláss er fyrir 18 manns á námskeiðinu. Tvær dagsetningar eru í boði, 6. mars og 18. mars.

Miðasala hér!

* þeir sem þegar eiga Tarot-bókina og spilin geta valið um að fá bókina Lesið í tarot eða Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt í staðinn *

Námskeiðin fara fram í bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík. Þau hefjast kl. 20 og áætlað er að námskeiðin standi til kl. 22. 

Verið hjartanlega velkomin!

25. janúar 2024 eftir Anna Lea Friðriksdóttir