Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

LÆK

4,990 ISK

Höfundur Bergrún Íris, Gunnar Helgason og krakkarnir í Hafnarfirði

Sæskrímsli, uppvakningar, tröll, kolkrabbahamstur, fangamyndavél, ofurhetja og allskyns aðrar fígúrur búa innan um mannfólkið í Hafnarfirði og lifna við í stórskemmtilegum, sprenghlægilegum, á stundum afar sorglegum en aðallega spennandi smásögum.

Nemendur á mið- og unglingastigi í Hafnarfirði skrifuðu niður hugmyndir að söguþráðum, sögusviðum og nöfnum sögupersóna. Verðlaunahöfundarnir Gunnar Helgason og Bergrún Íris drógu svo úr hugmyndunum og það var alveg sama hversu klikkaðar, skrítnar eða ótrúlegar hugmyndirnar voru, þau URÐU að nota þær. Þannig að sögurnar eru skrifaðar af Gunna, Bergrúnu og krökkunum í Hafnarfirði.

Útkoman er ein hressilegasta bók sem út hefur komið!