Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Örninn og fálkinn

3,990 ISK

Höfundur Valur Gunnarsson

Örninn og Fálkinn er æsispennandi skáldverk um veruleika sem hefði getað orðið ef herlið Hitlers hefði komið á undan Bretum til Íslands.

Stríðið í Evrópu ratar til Íslands þegar nasistar ganga á land í Reykjavík vorið 1940. Sigurður Jónasson, ungur starfsmaður hjá Landsímanum, fylgist með hvernig fólk aðlagast hinu nýja Hitlers-Íslandi, margir græða og þjóðernissinnar sækja í sig veðrið. En þegar slettist upp á vinskap Hitlers og Stalíns í austri fer vísir að íslenskri andspyrnuhreyfingu að verða til.

Hvað er það sem nasistar eru í raun að vilja á Íslandi? Og hvað eru þeirra helstu vísindamenn að gera á hálendinu? Sigurður og félagar hans halda í hættuför þar sem markmiðið er að koma í veg fyrir það sem virðist vera óhjákvæmilegur sigur Þjóðverja í stríðinu.