Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

40 vikur

1,990 ISK

Höfundur Ragnheiður Gestsdóttir

Sunna er að ljúka vorprófum í 10. bekk. Fram undan er áhyggjulaust sumar og handan þess spennandi tímar menntaskólaáranna. Kvöldið sem krakkarnir fagna próflokum hittir Sunna Bigga, sætasta strákinn í bekknum. Þau eyða nóttinni saman heima hjá Sunnu. Þegar líður á haustið breytist allt lífið þegar hún kemst að því að nóttin hefur haft afleiðingar.

Bókin hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2001 og kemur nú út í endurbættri útgáfu.

Ragnheiður Gestsdóttir er kennari að mennt og hefur skrifað töluvert af kennsluefni. Hún hefur hlotið athygli fyrir unglingasögur sínar og árið 2005 hlaut Ragnheiður Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bókina Sverðberinn.