Prumpulíus og Roplaugur

Kai Luftner

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

Bókin um Prumpulíus og Roplaug er þriðja bókin um brelludrekann knáa. Í bókinni mætir Roplaugur í Drekadal með hvílíkum látum og gleypugangi. Vinirnir Hiksta-Halla og Prumpulíus reyna að ná stjórn á aðstæðum og grípa til örþrifaráða til að stöðva óhemjuna. Bráðfyndin saga sem fjallar um á stjórnlaus búkhljóð og sannan vinskap ólíkra einstaklinga.

Það var árla morguns,
hljóðlátt hér í Drekadal.
Ekkert prump eða hikk,
– og hreint ekkert hanagal.

Friðsældin var algjör,
líkt og aldnir helst við una.
En þá heyrðist úr fjarska
– rosa digur druna.

Og – ROPI rýfur þögnina! Það er hann Roplaugur og hann er SVANGUR. Tekst Prumpulíusi  að bjarga Drekadal frá gráðuga gleypikjaftinum? Prumpulíus og Roplaugur er þriðja bókin um prumpusmellinn knáa.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Prumpulíus og Roplaugur

Prumpulíus og Roplaugur

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK