Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Sólgos

6,490 ISK

Höfundur Arndís Þórarinsdóttir

Sólgos er spennandi og áhrifarík unglingabók um samfélag þar sem allar reglurnar hafa horfið á einu bretti og ógnin er orðin helsti gjaldmiðillinn. Mitt í upplausninni má þó finna samstöðu, samkennd og heitar tilfinningar.

 

Arndís Þórarinsdóttir er fjölhæfur höfundur sem skrifar bækur fyrir fullorðna, ungmenni og börn. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur. Hún hefur einnig verið tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Þýsku barnabókaverðlaunanna.