Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Eimreiðarelítan - Spillingasaga

10,990 ISK 9,990 ISK

Höfundur Þorvaldur Logason

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Sagan fylgir frægustu valdaelítu nútímans frá upphafi áforma hennar um yfirráð yfir Íslandi. Á hátindi pólitískrar sigurgöngu hennar afhjúpaðist mesta fjármálaspilling sem sannast hefur í markaðskerfi í heiminum og kveikti umfangsmeiri
fjársvikarannsóknir en áður hafa þekkst í Evrópu. Þorvaldur Logason kafar djúpt ofan í undirheima opinbers valds á Íslandi og fylgir slóð grunsemda um spillingu æðstu ráðenda ríkisins um áratugaskeið.Hér er sköpuð við og heildstæð mynd af rótgrónum spillingarvanda Íslands. Stóru spurningunum um pólitísk undirferli og svik er loksins svarað.
Bókin er byggð á fjalli af rannsóknarskjölum, B.A. og meistaraprófsritgerðum um spillingu ásamt umfangsmiklum óbirtum trúnaðargögnum innan úr Landsbankanum og fjölda dómsmála.
Sumt vissirðu. Sumt grunaði þig. Hér færðu stóra samhengið.