Góð heilsa alla ævi án öfga
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Á hverjum degi höfum við val um hvort og hvernig við hlúum að eigin heilsu. Það veit næringarfræðingurinn Geir Gunnar Markússon manna best af starfi sínu sem heilsuráðgjafi á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Í þessum vegvísi að betra lífi sýnir hann okkur skynsamlegar leiðir til að styrkja grunnstoðir heilsunnar; næringu, hreyf ingu, svefn og sálarlíf. Í neyslu- og streitusamfélagi nútímans eru lífsstílssjúkdómar sú ógn sem skerðir lífsgæði okkar mest. Þessi bók er svar við ranghugmyndum, öfgum og fölskum skilaboðum á sviði heilsu sem dynja á okkur. Hún er einnig hvatning fyrir okkur til að taka ábyrgð á eigin heilbrigði til frambúðar.
Geir Gunnar deilir hér jafnframt ljúffengum og hollum uppskriftum frá eldhúsi Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Góð heilsa alla ævi án öfga