Útivera

Sabína Steinunn Halldórsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

Útivera hefur að geyma 52 spennandi hugmyndir til að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar úti í náttúrunni á öllum árstímum. Ævintýrin gerast nefnilega hvenær og hvar sem er. Hamingjan er fólgin í því að vera í núinu og njóta staðar og stundar.

Útivist með börnum snýst um samveru og að skapa minningar. Að auki hefur leikur og lærdómur í náttúrunni jákvæð áhrif á allan þroska barna og forspárgildi um lífsgæði og heilsu á efri árum.

Útivera er allskonar og náttúran er allskonar, iðandi af lífi og næringu. Náttúran okkar er alltaf opin öllum sem vilja sækja hana heim.

Sabína Steinunn Halldórsdóttir hefur sérhæft sig í hreyfifærni barna með áherslu á útivist í námi og starfi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og skrifað kennslubækur um efnið sem er henni afar hugleikið.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Útivera

Útivera

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK