Árstíðarverur

Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen

4,690 ISK
4,690 ISK

Bjarni og bekkjarfélagar hans eru að læra um árstíðirnar í skólanum. Hann verður því heldur hissa þegar hann vaknar einn vormorgun og allt er á kafi í snjó! Þetta passar alls ekki við það sem kennarinn sagði. Hann fer út að rannsaka málið en hittir þá fyrir kúnstugar verur sem segjast stýra veðrinu en verst er að þær eru að rífast! 

Diljá Hvannberg Gagu starfar sem verslunarstjóri hjá Pennanum og er tveggja barna móðir. Diljá hefur skrifað sögur sér til skemmtunar frá barnsaldri. Árstíðarverur er fyrsta barnabókin hennar.

Linn Janssen útskrifaðist af teiknibraut Myndlistaskólans í Reykjavík árið 2022. Hún var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2024 fyrir myndlýsingar sínar í bókinni Einstakt jólatré. Linn vinnur mikið með klippimyndir og býr til heillandi og hlýjan myndheim innblásinn af daglegu lífi á Íslandi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Árstíðarverur

Árstíðarverur

4,690 ISK
4,690 ISK