Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Íslandsdætur

2,990 ISK 999 ISK

Höfundur Nína Björk Jónsdóttir

Íslandsdætur er barnabók sem segir sögu rúmlega fjörutíu framúrskarandi kvenna sem spanna tímann allt frá upphafi byggðar á Íslandi til dagsins í dag. Konurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Sumar eru þekktar fyrir hugrekki og staðfestu eða fyrir að hafa upplifað ótrúlegar þrekraunir og tekist á við þær af seiglu og áræðni. Aðrar voru brautryðjendur, landkönnuðir, menntakonur, sjómenn eða þekktar fyrir vísindastörf, íþróttaafrek, ritstörf, tónsmíðar eða aðrar listir. Hér er einnig sögð saga kvenna sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna og gáfu kost á sér til forystu til að bæta samfélagið. Yngstu konurnar í bókinni eru rétt að byrja að láta til sín taka.

Á síðum Íslandsdætra er fjallað um stórmerkilegar konur sem höfðu áhrif á samtíma sinn og skildu eftir sig merkilega arfleifð. Kvenskörungar sem létu til sín taka, ruddu brautina, voru frumkvöðlar og létu ekki mótlæti, erfiðar aðstæður, fátækt eða hneykslan samborgaranna á sig fá. Þær eru Íslandsdætur.

Myndir bókarinnar teiknar Auður Ýr Elísabetardóttir á sinn óviðjafnanlega hátt.

Hér má hlusta á viðtal við Nínu Björk í þættinum Segðu mér á Rás 1

Hér má lesa viðtal við Nínu Björk í Fréttablaðinu

Hér má lesa umfjöllun um Íslandsdætur í Morgunblaðinu