Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Kynsegin

3,490 ISK

Höfundur Maia Kobabe

Kynsegin er sjálfsævisaga Maia Kobabe sem segir á einstaklega hreinskilinn hátt frá því að finna sjálft sig eftir margra ára sjálfsefa og óvissu, og að koma út sem kynsegin og eikynhneigt fyrir fjölskyldu híns og samfélagi. Með því að spyrja krefjandi spurninga um kynvitund, hvaða þýðingu hún hefur og hvernig við upplifum hana, verður þessi persónulega saga áhrifamikill vegvísir í átt að skilningi á okkur sjálfum og öðrum.

Myndasagan hlaut bæði Alex- og Stonewall-verðlaunin og var þar að auki tilnefnd sem besta myndasagan fyrir ungmenni af YALSA. Auk þess hefur bókin setið á bannlistum víða í Bandaríkjunum frá útgáfu hennar. 

Elías Rúni og Mars Proppé þýddu. 

Lestrarklefinn fjallaði um bókina og þar sagði meðal annars:

„Ég mæli með að öll lesi bókina, þá sérlega þau sem eru trans og eða kynsegin. Hún er falleg, fljótlesin, mjög fyndin og vel skrifuð. Myndlýsingarnar eru fallegar, persónur eru með mjög skýr karaktereinkenni, brotið er þægilegt, litirnir eru fallegir og skilaboðin, að við séum öll bara að gera okkar besta með að finna okkur sjálf, eru æðisleg.“

Elías Rúni og Mars Proppé hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025 fyrir þýðingu Kynsegin! Í um­sögn dóm­nefnd­ar um seg­ir:

„Elías Rúni og Mars Proppé þýddu skáld­sög­una Kynseg­in, sjálfsævi­sögu þar sem Maia Koba­be seg­ir frá því hvernig hín fann sjálft sig eft­ir margra ára sjálfs­efa og óvissu. Þessi teikni­mynda­saga er listi­lega gert verk um mik­il­vægt mál­efni og hef­ur án efa verið áskor­un fyr­ir þýðend­urna tvo sem leystu ým­isskon­ar vanda­mál af lagni og virðingu fyr­ir efn­inu.“

Útgefandi: SALKA