Gestabók

Ýmsir höfundar

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

Hvað eiga ungur rannsóknarblaðamaður, þeyttur fetaostur og
kjölturakkinn Járnfrúin sameiginlegt – annað en að vera
hugarfóstur meistaranema í ritlist?
Smásagnasveigurinn Gestabók hverfist um veislu og gestina
sem þangað koma, flestir að því er virðist fremur af
skyldurækni en löngun. Þar er sagt frá kvöðinni sem boð í
veislu getur verið, en líka þessu undarlega samsafni fólks sem
þar mætist. Fjölskyldubönd teygjast og trosna og sambönd
flækjast og leysast upp. Í stutta stund er þetta fólk statt á sama
stað og sama tíma, en fyrir utan veisluhöldin heldur lífið áfram.
Hlaðborðið er óþrjótandi og gestabókin fyllist smátt og smátt.
 
„Þessi bók gleypti mig með húð og hári – dúndurverk!“
-María Elísabet Bragadóttir
 
Höfundar 2024:
Anton Sturla Antonsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir 
Fanney Björk Ingólfsdóttir, Guðrún Friðriks, Hera Fjord, Hrönn Blöndal Birgisdóttir, Karólína
Rós Ólafsdóttir, Orri Matthías Haraldsson og Vignir Rafn Valþórsson

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Gestabók

Gestabók

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK