Psst... við erum líka bar!

Sendum frítt þegar verslað er fyrir meira en 10.000kr í vefverslun!

Systu megin - Leiksaga

Steinunn Sigurðardóttir

3,990 ISK
3,990 ISK

Systu megin er hárbeitt og óvenjuleg saga um utangarðsfólk sem fær hér bæði rödd og ásýnd.

Systa býr ein í kjallarakompu við bágar aðstæður en hún ræður sér sjálf. Hún hefur losað sig að mestu undan ægivaldi Mömmu eins og Brósi, bróðir hennar og bandamaður í tilverunni. Saman hafa þau tekist á við harðan heim frá barnæsku en valið hvort sína leið, Brósi innan samfélagsins, Systa utan þess. Dagsdaglega dregur Systa fram lífið með dósasöfnun en þegar henni býðst aukið öryggi í skiptum fyrir frelsi er úr vöndu að ráða.

Skáldverk Steinunnar Sigurðardóttur búa yfir einstökum tóni og andblæ. Sögur hennar eru í senn harmrænar og fyndnar, raunsæjar og furðulegar, og leikandi stíllinn er ærslafullur. Steinunn hefur skapað og skrifað um margar ógleymanlegar kvenpersónur í verkum sínum – svo aðeins Alda í Tímaþjófnum sé nefnd – og nú bætist Systa í hópinn.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Systu megin - Leiksaga

Systu megin - Leiksaga

3,990 ISK
3,990 ISK