Elle Kennedy
Elle Kennedy er metsöluhöfundur á listum New York Times, USA Today og Wall Street Journal og hefur heillað lesendur um allan heim upp úr skónum. Hún hefur skrifað yfir fimmtíu bækur, þar á meðal hina geysivinsælu Off-Campus seríu sem hefur notið gríðarlegra vinsælda, en vinsældir seríunnar hafa aukist enn frekar eftir að bækurnar voru færðar yfir á sjónvarpsskjá.
Elle Kennedy ólst upp í úthverfi Toronto í Kanada og lauk BA-prófi í ensku frá York University. Frá unga aldri vissi Elle að hún vildi verða rithöfundur og byrjaði markvisst að vinna að þeim draumi þegar hún var á unglingsaldri.
Skoða bækur eftir höfund