Ný sending af erlendum bókum

Við vorum að taka á móti nýrri sendingu af bókum sem margar hverjar hafa vakið mikla athygli síðustu mánuði – allt frá bókum af stuttlista Booker-verðlaunanna til klassískra, cult og BookTok bóka sem fólk virðist einfaldlega ekki geta hætt að tala um.

Hér eru nokkrar spennandi bækur sem við mælum sérstaklega með.

Yesteryear by Caro Claire Burke

Caro Claire Burke

Yesteryear

Yesteryear er ein af þessum bókum sem fólk getur ekki hætt að tala um enda hefur hún farið eins og eldur í sinu á BookTok. Bókin byrjar sem satíra á hinn svokallaða trad-wife lífsstíl sem hefur verið rómantíseraður á samfélagsmiðlum undanfarið, en breytist fljótt í myrka og óþægilega sögu sem er ómögulegt að leggja frá sér.

Samfélagsmiðlastjarnan Natalie lifir að því er virðist hinu fullkomna lífi í sveitasælu með fjölskyldu sinni þar sem allt er heimagert samkvæmt gömlu góðu gildunum. Þegar hún vaknar einn daginn árið 1855 breytist þessi rómantíski draumur sem hún hefur selt milljónum fylgenda sinna skyndilega í martraðarkenndan veruleika. Það reynist ekki svo einfalt að lifa í fortíðinni og hugmyndir Natalie um hefðir, kvenhlutverk og gömlu góðu gildin fara smám saman að hrynja, ásamt þeirri fullkomnu ímynd sem hún hefur byggt upp í kringum sjálfa sig.

Bókin er fyndin, óhugnanleg og skörp ádeila – fullkomin fyrir þau sem vilja bækur sem ögra og velta upp pælingum um viðtekin gildi nútímasamfélags.

Skoða í vefverslun
Taiwan Travelogue by Shuang-zi Yang

Yáng Shuāng-zǐ

Taiwan Travelogue – Booker-verðlaunin 2026

Taiwan Travelogue hlaut Booker-verðlaunin í ár og það er auðvelt að skilja hvers vegna – hún er bæði ljóðræn og djúp og býður lesandanum að staldra við og hugsa frekar en að hlaupa í gegnum söguna á hundavaði.

Sagan gerist árið 1938 þegar japanski rithöfundurinn Aoyama Chizuko ferðast til Taívan og kynnist túlkinum Chizuru sem fylgir henni um eyjuna. Í gegnum lestarferðir um landslag, götur fullar af matarlykt og samtöl þróast samband þeirra á sama tíma og saga nýlendustefnu, valds og sjálfsmyndar er velt upp.

Þetta er bók fyrir þau sem elska að dvelja í ferðalaginu sjálfu – þar sem menning og mannlíf skipta jafn miklu máli og söguþráðurinn sjálfur. Jafnframt gefur sagan tækifæri til að líta inn á við og skoða eigin viðhorf og þekkingu varðandi fordóma og forréttindastöðu. 

Við mælum með!

Skoða í vefverslun

Jacqueline Harpman

I Who Have Never Known Men - dystópísk cult klassík

I Who Have Never Known Men kom fyrst út á frönsku árið 1995 og hefur öðlast ákveðinn cult-status meðal lesenda sem elska dystópískar og heimspekilegar skáldsögur. Þótt bókin sé rúmlega þrjátíu ára gömul heldur hún áfram að ganga milli lesenda á BookTok þar sem sífellt fleiri uppgötva þessa undarlegu og áhrifamiklu sögu.

40 konum er haldið föngnum í neðanjarðarbyrgi undir eftirliti varða sem gefa engar skýringar á því hvers vegna þær eru þarna. Aðalpersónan er yngst kvennanna og á engar minningar af heiminum utan veggja byrgisins. Hún hefur aldrei kynnst samfélaginu eins og við þekkjum það og veit varla hvað það þýðir að vera manneskja.

Bókin veltir upp spurningum um sjálfsmynd, samfélag og hvað það þýðir að vera manneskja þegar allt sem skilgreinir lífið hefur verið tekið í burtu. Köld, einmanaleg og áhrifamikil saga, fullkomin fyrir lesendur sem fíla dystópískar sögur og heimspekilegar vangaveltur um lífið, samfélagið og mennskuna.

Skoða í vefverslun
Love Song by Elle Kennedy

Elle Kennedy

Love Song – fullkomin í sumarfríið

Metsöluhöfundurinn Elle Kennedy snýr aftur í Briar-heiminn með bókinni Love Song. Hér er á ferðinni hjartnæm og sjóðandi heit ástarsaga, stútfull af sumarstemningu, rómans og ómótstæðilegri spennu.

Eftir erfið sambandsslit ákveður Blake Logan að eyða sumrinu fjölskyldubústaðnum við Tahoe-vatn, langt frá ástarmálum og dramatík. En þegar Wyatt Graham – maðurinn sem hún hefur reynt að gleyma í mörg ár – birtist óvænt fer allt á annan endann.

Love Song er saga um fyrstu ástina, ný tækifæri og hvernig eitt sumar getur breytt öllu. 

Fullkomin fyrir lesendur sem fíla háskólarómantík, slow-burn ástarsögur og einstakan húmor Elle Kennedy.

Skoða í vefverslun
Famesick: A Memoir by Lena Dunham

Caption

Famesick: A Memoir – frægð, sjálfsmynd og jafnvægi

Lena Dunham, leikstjóri og höfundur þáttanna Girls, snýr nú aftur með bókina Famesick: A Memoir, persónulega og einlæga sjálfsævisögu um frægð, sjálfsmynd og leitina að jafnvægi í lífi undir smásjá almennings.

Í bókinni fjallar Dunham um það hvernig er að alast upp í sviðsljósinu, takast á við væntingar annarra og finna sína eigin rödd. Hún skoðar bæði björtu og myrku hliðar frægðarinnar og deilir reynslu sinni af samböndum, sköpun og því að eldast í augum almennings af einlægri hreinskilni, innsæi og húmor.

Famesick: A Memoir er áhrifamikil bók sem höfðar jafnt til aðdáenda Lenu Dunham sem og lesenda sem hafa gaman af sjálfsævisögum um lífið í samtímanum.

Skoða í vefverslun