BÓKABÚÐ - BÓKAÚTGÁFA - BÓKABAR

Um Sölku

Salka er til húsa á Hverfisgötu 89-93 og þar er rekin sjálfstæð bókaútgáfa, bókabúð og bókabar. Við höldum reglulega bókakvöld þar sem höfundar kynna bækur sínar og aðra bókatengda viðburði. Verið hjartanlega velkomin til okkar!

Salka var stofnuð árið 2000 og gefur út allt frá matreiðslubókum að ljóðabókum og frá fræðibókum að barnabókum. Útgáfan og bókabúðin eru reknar af Dögg Hjaltalín og Önnu Leu Friðriksdóttur, sem jafnframt eru eigendur. Í gegnum tíðina hefur Salka gefið út gott úrval handbóka og ætlum við okkur að halda því áfram í bland við útgáfu á góðum barnabókum, skáldsögum, fræðibókum og öllu því sem gefur lífinu lit. 

Við gefum út vandaðar bækur undir merkjum Sölku en fyrirtækið okkar heitir Útgáfuhúsið Verðandi.


Þú getur skoðað bækurnar okkar hér.

BÓKABÚÐ - BÓKABAR - VIÐBURÐIR

Staðsetning og opnunartímar

Bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93 er opin frá 11-17 á virkum dögum og 12-16 á laugardögum. Lokað á sunnudögum.

Við erum með kaffi, te og ýmsa drykki á barnum.

Alltaf er hægt að senda okkur fyrirspurnir á bokabud@salka.is 

BÓKAÚTGÁFA

Skil á handritum

Ef þú telur þig luma á góðri hugmynd að bók máttu fylla út eftirfarandi eyðublað og senda okkur á handrit@salka.is. Við skoðum allt frá hugmyndum á grunnstigi til fullunna handrita sem berast í tölvupósti og vekjum athygli á að við tökum handrit sem berast til okkar með öðrum leiðum ekki til skoðunar.

Við förum yfir öll eyðublöð sem berast með fagráði Sölku sem er vel valinn hópur sérfræðinga á sviði bókaútgáfu. Fundir fagráðsins eru haldnir reglulega eftir þörfum. Öllum fyrirspurnum verður svarað. Við vekjum athygli á því að við skoðum ekki handrit sem eru í skoðun hjá öðrum útgefendum á sama tíma. 

SALKA - VERÐANDI

Hafa samband