109 Sudoku - bók 22
Salka - bókaútgáfa og bókabúð
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
109 SUDOKU bækurnar hafa verið lang vinsælustu Sudoku bækur landsins frá því fyrsta bókin kom út í september 2005. Bók 22 bætist nú við þennan skemmtilega bókaflokk.
Bók 22 inniheldur 109 stórskemmtilegar Sudoku gátur í sömu fjórum erfiðleikastigum og áður. Fjöldi gáta í hverjum flokki er nú; 20 auðveldar gátur, 30 þægilegar, 30 erfiðar og 20 kvikindislegar. Í þessari bók eru einnig 9 gátur af nýrri sort; Ofurhetju-sudoku! þetta eru gátur aðeins fyrir lengra komna!
Áskorunin verður ekki meiri!
Sudoku krefst einbeitingar og ákveðinnar rökhugsunar, sem um leið skerpir hugann, bætir einbeitingu og kemur gráu sellunum á hressilega hreyfingu. Eitt ber þó að hafa í huga, leikurinn er hættulega ávanabindandi!
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
109 Sudoku - bók 22