Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

172 tímar á tunglinu

1,999 ISK

Höfundur Johan Harstad

Þrír unglingar halda í ótrúlegt ferðalag, alla leið til tunglsins!

Í tilefni af því að ríflega fjörutíu ár eru liðin síðan fyrsti maðurinn steig á tunglið, efnir NASA til alþjóðlegs happdrættis fyrir unglinga þar sem verðlaunin eru vikuferð til tunglstöðvarinnar DARLAH 2.

Vinningshafarnir þrír; Antoine, Mia og Midori koma frá Frakklandi, Noregi og Japan. Þau þekkja hins vegar ekki, frekar en almenningur, ástæðu þess að NASA hefur ekki sent annað mannað geimfar til tunglsins fyrr en nú.

Unglingarnir „heppnu“ komast hins vegar fljótt að því að ekki er allt með felldu á tunglinu. Það er meira að segja óvíst hvort allir eigi eftir að komast heilir heim aftur …