18th Century Stone Buildings
3,490 ISK 1,990 ISK
Höfundur Björn G. Björnsson
Á seinni hluta 18. aldar lét danska stjórnin byggja átta vönduð steinhús á Íslandi, fjögur íbúðarhús fyrir embættismenn sína og fjórar kirkjur. Þau voru teiknuð af fremstu arkitektum Dana og gegna enn mikilvægu hlutverki: Stjórnarráðshúsið í Reykjavík, Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja, Nesstofa við Seltjörn, Hóladómkirkja í Hjaltadal, Landakirkja á Heimaey, Bessastaðastofa og Bessastaðakirkja. Allir þessir staðir - og allar þessar byggingar - eru hluti af íslenskum menningararfi og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði. Höfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Þýðandi er Anna Yates. Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum. Hér er bætt úr brýnni þörf því lítið hefur verið um bækur af þessu tagi á markaðnum, áherslan hefur verið á landið og náttúruna. Bækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.