Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Á íslenskum skóm

5,490 ISK

Höfundur Halldór Laxness

Halldór Laxness er þekktastur fyrir skáldsögur sínar en hann skrifaði einnig fjölda smásagna, gaf út endurminningar, ritgerðir, greinasöfn og kvæðakver. Í þessari bók má finna úrval af styttri sögum hans, greinum og ljóðum, perlur sem skipa stóran sess hjá lesendum engu síður en skáldsögurnar og eiga allar sinn stað í íslenskri bókmenntasögu og þjóðarsál.

Meðal efnis eru þekktar sögur eins og Ungfrúin góða og Húsið, sem hefur verið kvikmynduð, og Jón í Brauðhúsum og kvæði sem oft heyrast sungin eins og "Hvert örstutt spor", réttu nafni "Vöggukvæði", og "Maístjarnan" sem hefur orðið að baráttusöng verkalýðsins. Að auki eru hér alkunnar greinar skáldsins um listir, þrifnað og þjóðerni sem vöktu mikla athygli og jafnvel úlfúð þegar þær birtust fyrst.

Þessi útgáfa er með venjulegri nútímastafsetningu og orðskýringum en hvoru tveggja er ætlað að gera texta Halldórs Laxness aðgengilegri fyrir lesendur.