Á nóttunni er allt blóð svart

David Diop

4,290 ISK
4,290 ISK

Þegar Alfa Ndiaye treystir sér ekki til að veita æskuvini sínum Mademba Diop náðarhöggið þar sem hann liggur illa særður milli skotgrafa í fyrri heimstyrjöldinni brestur eitthvað innra með honum og hefndarþorsti heltekur hann. Í fyrstu dást félagarnir að hugrekki Alfa en þegar voðaverkunum linnir ekki hættir þeim að lítast á blikuna.

Fransk-senegalski rithöfundurinn David Diop varpar ljósi á fáránleika skotgrafahernaðarins sem einkenndi fyrri heimstyrjöldina, þar sem um tvö hundruð þúsund fótgönguliðar frá Vestur – Afríku létu lífið fyrir Frakkland. Afrísku hermennirnir gengu undir nafninu Chocolats vegna húðlitarins  og var þeim ætlað að vekja skelfingu hjá óvininum sem mannætur og villimenn vopnaðir sveðjum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Á nóttunni er allt blóð svart

Á nóttunni er allt blóð svart

4,290 ISK
4,290 ISK