Að áliðnum degi
Tessa Hadley
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/
„Hlýleg og margslungin saga um endurfæðingu á miðjum aldri.“
- Daily Mail
„Sígild og nýstárleg í senn, alveg stórbrotin.“
- New York Times Book Review
Christine og Alex eiga að baki þrjátíu ára nána hjónavináttu við Lydiu og Zachary. Sumarkvöld eitt berst þeim óvænt símtal: Lydia hringir af sjúkrahúsinu í miklu uppnámi, Zachary hefur fengið hjartaáfall og er látinn.
Sorg og rótleysi heltekur þau þrjú sem eftir sitja, enda rennur upp fyrir þeim að hinn hlýi og örláti Zachary hefur verið kjölfestan í lífi þeirra allra. Lydia er óhuggandi og flytur í ráðaleysi sínu inn á Alex og Christine. En harmurinn þjappar þeim ekki saman, þvert á móti koma gömul leyndarmál og gremja smám saman upp á yfirborðið og það hriktir í stoðum vináttunnar.
Breski rithöfundurinn Tessa Hadley hefur einstakt lag á að skrifa um náin tengsl og sálarflækjur. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, þeirra helst bresku Hawthornden-verðlaunin og bandarísku Windham Campbell-verðlaunin.
Herdís M. Hübner þýddi.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Að áliðnum degi
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/