Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Að drepa hermikráku

1,990 ISK

Höfundur Harper Lee

Að drepa hermikráku kom fyrst út í Bandaríkjunum undir heitinu To Kill a Mockingbird árið 1960 og hefur nú selst í yfir 40 milljónum eintaka. Höfundur bókarinnar, skáldkonan Harper Lee, hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir hana en bókin er afar áhrifamikil og frábærlega skrifuð þar sem kímni og alvarleiki renna saman í töfrandi frásögn.

Undirtónninn er raunsönn lýsing á aldarfari í suðurríkjum Bandaríkjanna á fyrri luta síðustu aldar, fordómum, kynþáttamismunun en líka manngæsku og samstöðu. Þar sem barn segir söguna verður lýsingin enn sterkari og áhrifameiri. Bókin hefur ekki áður komið út á íslensku, en þýðandi er Sigurlína Davíðsdóttir.