ADHD fullorðinna
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar
Bók fyrir þá sem vilja skilja og ná betri tökum á ADHD einkennum sínum.
Bókin varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferli, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til að draga úr frestun.
Þótt ADHD verði ekki upprætt með bókalestri má draga úr þeirri hömlun sem einkennin valda. Höfundar eru sálfræðingar og hafa áralanga reynslu af greiningu og ráðgjöf vegna ADHD.
Bára Sif Ómarsdóttir stýrir ADHD-teymi við Kvíðameðferðarstöðina. Sóley Dröfn Davíðsdóttir er yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
ADHD fullorðinna