Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Álfareiðin
6,490 ISK
Höfundur Gunnar Theodór Eggertsson
Æsispennandi og nýstárleg álfahrollvekja!
Menntskælingurinn Líneik er spennt að búa til hlaðvarpsþátt í valáfanga í fjölmiðlafræði en þykir alveg glatað að hann eigi að vera um álfa. Og ekki nóg með það heldur neyðist hún til að vinna í hóp og situr uppi með bæði skrýtnu stelpuna og mesta slugsann í bekknum.
Perla og Jónki leyna þó á sér og fyrr en varir eru þau búin að grafa upp dularfullt þorp á Suðurlandi sem tengist álfum og virðist eiga sér blóðuga sögu. Þegar þríeykið mætir á staðinn rennur fljótt upp fyrir þeim að þorpsbúarnir hafa margt og miður fallegt að fela og það getur reynst stórhættulegt að spyrja rangra spurninga.