Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Allt frá hatti oní skó

8,690 ISK

Höfundur Einar Már Guðmundsson

„Enginn veit hvað skáldsaga er …“ – Á þeim orðum danska skáldsins Pouls Borum hefst þessi saga og í takt við þau ögrar hún skilgreiningum, dansar á mörkum skáldskapar og minninga.
Hér segir frá Haraldi sem ætlar að verða skáld og með það að markmiði flytur hann til Kaupmannahafnar með kærustunni haustið 1979. Þar lendir hann strax í suðupotti menningarinnar og kynnist margs konar fólki, ekki síst listamönnum og skáldum, sem og nýjum skáldskap, viðhorfum og tónlist.
Frásögnin af því hvernig skáld verður til, mótast af umhverfinu og mótar sig sjálft – allt frá hatti oní skó – er einstaklega fjörug og teygir sig víða. Skrautlegar persónur, staðir, atvik og sögur lifna við svo úr verður litríkur vefur umleikinn órólegum anda níunda áratugarins þegar allt breyttist – og Haraldur varð skáld.
Einar Már Guðmundsson hefur áður boðið lesendum inn í sama sagnaheim, m.a. í verðlaunasögunni Englum alheimsins frá 1993 og þroskasögunni Passamyndum frá 2017.