Amelía og Óliver fara í bústað

Sigrún Alda Sigfúsdóttir og Kristín Björg Sigurvinsdóttir

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK

Amelía og Óliver fara í bústað með ömmu og mömmu. Þar hitta þau óvænt tröllið Blæ sem er í heimsókn hjá frænku sinni. Saman fara þau í berjamó og lenda í alls konar ævintýrum í fallegri íslenskri náttúru. Amelía og Óliver er hugljúf saga um vináttu og leikgleði.

Höfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.

Amelía og Óliver er ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd millilagsorð, þ.e. orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.

Markmið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.

Hægt er að fræðast meira um bókina og höfunda á https://ordabrunnur.is/

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Amelía og Óliver fara í bústað

Amelía og Óliver fara í bústað

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK