Andlit - ljósmyndabók

Jónatan Grétarsson

🚚 Ships across Europe from Reykjavík
❤️ Popular with travelers to Iceland

1,990 ISK
1,990 ISK 12,990 ISK

Hér er á ferðinni ljósmyndabók sem felur í sér mannlýsingar og hefur að geyma 192 ljósmyndir af íslenskum listamönnum. Guðmundur Andri Thorsson skrifar texta við myndir og undirstrikar hina einstöku stemmingu sem bókin býr yfir. Guðmundur Oddur Magnússon skrifar formála þar sem hann líkir Jónatan við Andy Warhol og segir meðal annars: „Bein, hörð birta Jónatans afmarkar fyrirmyndina og togar í hana þannig að hún virðist koma á móti áhorfandanum. Drungaleg lýsing - ekkert bros, litir fölnaðir, eftirsjá og fortíðarhyggja. /…/ Þessi skráningaraðferð Jónatans er á háu stigi og nærveran slík að áhorfandinn er tekinn í ferðalag og freistast til að fara á bak við spegilinn, inn í heim hins veruleikans sem er uppfullur af táknum, íkonum sem hafa fest á hvolfi hins innra heims. Það er ekki hægðarleikur að snúa til baka svo sterk er upplifunin. Hugurinn hefur nefnilega hálfa sjónina.“ Jónatan notar samspil ljóss og skugga til að mála sterkar myndir af svipmiklu fólki. Bergsteinn, Fréttablaðið Íslenskir listamenn eru ekki svipmyndir sem fanga eitt augnablik, heldur úthugsuð og þaulunnin myndverk. Jón Kaldal, Fréttatíminn

WHY BUY FROM SALKA

Salka is an independent bookstore based in Reykjavík, Iceland, specializing in Icelandic literature, culture, and curated international titles about Iceland.

We ship selected Icelandic books across Europe for readers interested in Icelandic culture, literature, and storytelling.

Recently viewed

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Andlit - ljósmyndabók

Andlit - ljósmyndabók

1,990 ISK
1,990 ISK 12,990 ISK