Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Andlit til sýnis
9,990 ISK
Höfundur Kristín Loftsdóttir
Í Bók Kristínar Loftsdóttur mannfræðings, Andlit til sýnis, er lítið safn á Kanaríeyjum í brennidepli en þar má finna brjóstafsteypur af fólki frá ólíkum stöðum heimsins sem gerðar voru á nítjándu öld. Um er að ræða niðurstöður úr rannsókn Kristínar sem nær til Kanaríeyja, meginlands Spánar og Frakklands og snýr að þverþjóðlegum tengslum sem urðu til í gegnum kynþáttahugmyndir. Brjóstmyndirnar endurspegla þannig kynþáttahyggju og rányrkju nýlenduvelda fyrri tíma og áhuga Evrópubúa að stilla upp líkömum til fróðleiks og skemmtunar. Þar á meðal eru brjóstmyndir sjö Íslendinga. Bókin segir sögu þeirra og nokkurra annarra einstaklinga í lifandi og ríkulega myndskreyttri frásögn.