Andrúmsloft

Taylor Jenkins Reid

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

4,690 ISK
4,690 ISK 0 ISK

Joan Goodwin hefur verið gagntekin af stjörnunum frá því hún man eftir sér. Hún lifir kyrrlátu lífi, kennir stjörnufræði og tekur virkan þátt í uppeldi systurdóttur sinnar. Þegar hún svarar auglýsingu frá NASA, þar sem í fyrsta sinn er óskað sérstaklega eftir umsóknum vísindakvenna um geimfaraþjálfun hjá stofnuninni, snýst líf hennar á hvolf.

Joan er valin úr þúsundum umsækjenda og hefur þjálfun hjá geimferðastofnuninni. Nú snýst allt um að vera skipuð í áhöfn og verða ein af fáum útvöldum sem fá að fara út í geim. Hjá NASA kynnist hún fólki sem verður henni fljótt eins og önnur fjölskylda: flugmönnunum Hank og Griff, hinni sérvitru Lydiu, Donnu með gullhjartað og Vanessu Ford,

flugvélaverkfræðingnum heillandi sem vekur með Joan alveg nýjar tilfinningar. Saman tekst hópurinn á við krefjandi verkefni og fetar ókannaðar slóðir, bæði hið innra og ytra. Joan virðist hafa fengið allt sem hana dreymir um.

Þar til í desember 1984, í leiðangri STS-LR9, þegar hið óhugsandi gerist. Andrúmsloft er saga af óbilandi metnaði og dirfsku, af fólki sem þorir að elta drauma sína og hvernig það tekst á við það þegar draumurinn breytist í martröð. Umfram allt er hún hrífandi ástarsaga, eins og Taylor Jenkins Reid einni er lagið.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Andrúmsloft

Andrúmsloft

4,690 ISK
4,690 ISK 0 ISK