Ást á prjónunum

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Gertie býr með mömmu sinni og ömmu í yndislegum, litlum bæ nyrst í Skotlandi, þar sem fólkið er samheldið og náttúran ægifögur. Það er þó ekki ævintýrum fyrir að fara hjá Gertie. Hún hefur unnið í sömu kjörbúðinni síðan hún lauk skóla og félagslíf hennar snýst aðallega um prjónaklúbb skoðanaglaðra kvenna. Milli þess sem hún fitjar upp á prjónana kryddar Gertie hversdaginn með dagdraumum sem hún dvelur í meira en gott þykir.

En skjótt skipast veður í lofti í skosku Hálöndunum. Líf Gertie tekur stakkaskiptum þegar Morag, flugstjóri hjá MacIntyre Air, birtist einn daginn í kjörbúðinni og býður henni starf hjá flugfélaginu. Fyrr en varir er Gertie komin með nýja vinnu, flutt að heiman og gamli draumaprinsinn Struan bliknar í samanburði við norska flugvélamógúlinn Calum Frost. En nýja lífinu fylgja nýjar áskoranir. Tekst Gertie að koma ofan úr skýjaborginni og sýna hvað í henni býr? Stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en dagdraumar.

Sjálfstætt framhald af Skrifað í skýin eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan, en bækur hennar hafa selst í fimmtán milljónum eintaka og slegið í gegn hjá lesendum á Íslandi.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Ást á prjónunum

Ást á prjónunum

4,490 ISK
4,490 ISK 0 ISK