Bananasafnið
Rán Flygenring
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Bananar eru mest seldu ávextir á Íslandi, en Pálmi veit álíka mikið um banana og flest okkar – sama sem ekki neitt. Hann er nýfluttur í blokk þar sem hann þekkir engan og honum leiðist óskaplega. Þegar foreldrar hans gefa honum framandi túkanfugl hressist Pálmi við, allt þar til fuglinn sleppur út í hrímkalt skammdegið.
Í leit sinni að túkaninum berst Pálma óvæntur liðsauki, Fífa, og saman leggja þau í ævintýrlegan björgunarleiðangur sem leiðir þau undir snjóinn og inn í stórmerkilegt bananasafn. Vissir þú að banani er ber? Að það eru til bláir bananar og rauðir? Að apar eru í raun hrifnari af vínberjum en banönum? En það er eitthvað bogið við þessa undirheima ...
Rán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Tjörnina og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Eldgos.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Bananasafnið