Barnið í skóginum

Hans Rosenfeldt

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK

Hanna Wester snýr aftur til starfa hjá lögreglunni í Haparanda eftir sorgarleyfi og fær í fangið erfitt mál. Lík nýfædds barns hefur fundist úti í skógi og móðirin er horfin. En það eru fleiri en lögreglan sem leita að týndum mæðrum: leigumorðinginn Katja er komin aftur á kreik og rekur slóð tveggja barnshafandi kvenna sem eru á flótta undan kvölurum sínum.

Stjórnmálamaður í Stokkhólmi slær í gegn í innilegu sjónvarpsviðtali þar sem hann tilkynnir að nú sé loksins barn á leiðinni eftir áralanga baráttu við ófrjósemi. Sama kvöld hringir ókunn kona og hótar að koma upp um hver raunverulega gangi með barnið.

Barnið í skóginum er önnur bókin í Haparanda-flokki sænska verðlaunahöfundarins Hans Rosenfeldt. Hér beinir hann kastljósinu að ískyggilegu staðgöngumæðrunarbraski samtímans. Bókin hefur þegar verið seld til útgáfu í 25 löndum.

Nanna Brynhildur Þórsdóttir þýddi.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Barnið í skóginum

Barnið í skóginum

4,890 ISK
4,890 ISK 0 ISK