Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Vinkonur 1: Bekkjardrottningin

4,690 ISK

Höfundur Sara Ejersbo

Rétt áður en sumarfríið byrjar uppgötvar Jósefína svolítið sem bestu vinkonur hennar hafa haldið leyndu fyrir henni. Jósefína er alveg ákveðin í að vilja ekki vera með þeim í sjötta bekk og reynir að fá foreldra sína til að leyfa sér að skipta um skóla. En hvað með Lúkas, sætasta strákinn í skólanum, sem vill endilega að hún verði kyrr? Og er hún tilbúin til að missa vinkonur sínar að eilífu?

Þetta verður bæði spennandi og ruglingslegt sumar sem snýr öllu á hvolf, þangað til Jósefína áttar sig loksins á því hvað hún þarf að gera. Ef hún þorir …

Emma:
Emma er hætt að vera stillta stelpan. Þorir hún að segja satt þegar á reynir?

Jósefína:
Allar stelpurnar vilja vera vinkonur Jósefínu. Þýðir það líka að þær kunni vel við hana?

Amanda:
Amanda hefur alla sína skólagöngu séð um sig sjálf. Er kannski kominn tími til að hún eignist vinkonu – ef hún getur?

Vinkonur 1 – Bekkjardrottningin er fyrsta bók í seríunni Vinkonur sem fjallar um vináttu, leyndarmál, ást og lygar – og um að uppgötva að þótt maður sé nógu gamall til að gera breytingar á lífi sínu fara hlutirnir ekki alltaf eins og til stóð …