Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Bíbí í Berlín

5,490 ISK

Höfundur Bjargey Kristjánsdóttir, Guðrún Valgerður Stefánsdóttir

Bíbí hét fullu nafni Bjargey Kristjánsdóttir (1927 – 1999) en hún var kennd við kotbæ foreldra sinna, Berlín,  sem var rétt utan við Hofsós. Hún þótti bráðgert barn en veiktist á fyrsta ári og var síðar stimpluð sem „fáviti” af fjölskyldu sinni og sveitungum. Þegar móður Bíbíar féll frá var hún þrítug og var þá flutt á elliheimilið á Blönduósi þar sem hún dvaldi í tæpa tvo áratugi. Um síðir flutti hún í þorpið og lifði þar í skjóli vina. Þetta er hennar saga – sjálfsævisaga – en fáir vissu að hún væri læs eða skrifandi.