Biluð ást

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Biluð ást er í senn átakanleg fjölskyldusaga og mögnuð lýsing á óslökkvandi hefndarþorsta, vináttu og tryggð sem aldrei bregst. 


Jóhann Máni lifði eitt sinn háskalegu lífi, en hann er kominn á efri ár og býr ásamt hundi sínum í austurbæ Reykjavíkur. Viðburðasnauð tilvera hans breytist þó skyndilega þegar ókunnugir menn ráðast að kvöldlagi inn á heimili hans, og í framhaldinu neyðist hann til að leita á náðir fólks sem tengist honum fjölskylduböndum. 
En fortíðin er aldrei langt undan, og meðan Jóhann Máni tekst á við frekari aðsteðjandi ógnir rifjar hann upp örlagatíma í ævi sinni. Hann var aðeins barn að aldri þegar ógæfan kvaddi fyrst dyra, þá glataði hann ást og vináttu föður síns og samheldni fjölskyldunnar rofnaði. Síðar gerði hann sér að fyrirmynd víðfrægan afbrotamann og dróst inn í veröld óreglu og ofbeldis – og forboðinnar ástar.

Sigurjón Magnússon skipaði sér í hóp eftirtektarverðustu rithöfunda okkar með
fyrstu skáldsögu sinni, Góða nótt, Silja. Síðan eru skáldsögurnar orðnar níu, þeirra
á meðal Borgir og eyðimerkur, skáldsaga um Kristmann Guðmundsson, og Endimörk
heimsins sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Biluð ást - bók eftir Sigurjón Magnússon

Biluð ást

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK