Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Blesa og leitin að grænna grasi

3,490 ISK 1,999 ISK

Höfundur Lára Garðarsdóttir

Blesa er íslenskur hestur í venjulegum íslenskum haga sem vorkennir sjálfri sér agalega mikið. Hún er komin með upp í kok af að éta sama gula heyið alla daga og henni leiðist ógurlega. Blesa er algjörlega sannfærð um að grænna gras sé að finna annars staðar. Týri, vinur hennar, er orðinn þreyttur á að hlusta á volið í Blesu. Hann tekur til sinna ráða og rekur hana af stað í leiðangur. Blesa ferðast um allt land og kynnist alls konar dýrum og heimsækir spennandi staði. En eftir því sem líður á ferðalagið fer hún að velta fyrir sér hvort hún sé mögulega að leita langt yfir skammt. Kannski var heyið ekki svo slæmt í haganum heima þrátt fyrir allt?

Blesa og leitin að grænna grasi er fyndin og skemmtileg saga sem kynnir unga lesendur fyrir íslenskri náttúru og dýraríki hennar ásamt því að velta upp spurningunni hvort grasið sé alltaf grænna hinum megin.

Höfundur Blesu er Lára Garðarsdóttir. Hún hefur myndskreytt fjölda barnabóka en Blesa er önnur bókin sem hún bæði skrifar og myndskreytir.

Lára er menntaður teiknari og kvikari frá The Animation Workshop í Danmörku. Hún hefur starfað við helstu miðla frásagnargerðar – allt frá bókum upp í bíóskjái.

Lára er handhafi barnabókaverðlauna IBBY sem hún hlaut fyrir bókina Flökkusögu. Lára var einnig tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2018 fyrir myndirnar í Fjölskyldan mín.